... og hvar er níu mánaða gjaldeyrisforðinn?

Nú fá fyrirtæki ekki gjaldeyri fyrir innflutningi á vörum nema í mjög takmörkuðu magni, þegar gjaldeyrisforði Seðlabankans átti að geta haldið innflutningi uppi í níu mánuði og það án gjaldeyris sem fæst til landsins við útflutning.  Það hefur verið brotalöm á tilfærslu á gjaldeyri til landsins vegna útflutnings en engu að síður áttum við að eiga níu mánaða gjaldeyrisforða fyrir tveimur vikum síðan sem virðist ekki vera til lengur.  Hefur einhver skýringar á því?
mbl.is Sátt um IMF-lán í Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég spurðist fyrir um þetta og mér var sagt að það væri í sjálfu sér gjaldeyrir til, en hann væri fastur á bankareikningum erlendis.

Þeir voru víst ekkert að ljúga til um þessar gjaldeyrisbirgðir. Hins vega eru svo alltaf meiri og meiri skuldir að koma í ljós, svo það sem stjórnmálamenn "hugsanlega" sögðu í góðri trú fyrir 2-3 vikum kemur út eins og argasta lygi í dag!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 22.10.2008 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband